|
|
May 14, 2006
Köngulær eru ógeðslegar. Þær eru búnar að sækja aðeins of oft inn til mín upp á síðkastið og hafa þær allar endað líf sitt undir háskóladagbókinni minni. Þar sem skólinn er búinn, er tilvalið að nýta dagbókina á e-n annan hátt. Drepa köngulær.
Þegar ég var lítil var ég hins vegar ekkert hrædd við þessi kvikindi. Tók það að mér með ánægju að pinta þær og tosaði lappirnar af þeim, one by one, og hló kvikindishlátri. Ég var kvikindi þegar ég var lítil. Núna er ég hræðslupúki.
Þegar við bjuggum útí Köben leituðu köngulærnar ansi oft inn til okkar, enda bjuggum við á jarðhæð - rétt eins og núna. Þetta var orðið það hræðilegt ástand að mig dreymdi köngulóamartraðir nótt eftir nótt. Ég reyndi meira að segja að beita sálfræðiaðferðinni á þær og setti dauðar köngulær í gluggakistuna til að fæla hinar frá því að koma inn.... Það hafði takmörkuð áhrif.
En talandi um Köben...Þar verðum við Maggi á morgun. Þvílík tilhlökkun.
   
Köben
Berlin
Ítalía
London
Heim
Posted at 02:42 pm by Boggz
Permalink
May 10, 2006
School is out for the summer....
Þá er þinghöldum lokið.
Málið undirbúið í góða veðrinu.....

það sást frekar illa á skjáinn...
Komnar upp í héraðsdóm...virðulegar as always...
Virðulegu lögmenn stefnanda
Komnar inn í dómsal...
Málið lagt fyrir dóm....
.... og skólinn búinn..!!!
Posted at 10:35 am by Boggz
Permalink
May 3, 2006
Hafiði einhvern tímann staðið ykkur að því að vera að hugsa um eitthvað allt annað meðan einhver er að tala við ykkur? Ég lendi stundum í því, reyndar ekki oft, en það gerist. Þá er ég ekki að tala um eitthvað dónalegt heldur frekar pælingar um hvað viðkomandi er með vel plokkaðar augabrúnir, hvernig hún/hann nær að hafa svona hvítar tennur, flott hár...etc. etc...
Í dag var ég að leita ráða hjá kennaranum mínum varðandi verkefnið. Ég hlustaði nú á það sem hann sagði, en gat samt ekki hætt að velta því fyrir mér hvort svarti bolurinn sem hann var í innan undir jakkann væri langerma eða stutterma.....
Posted at 09:32 pm by Boggz
Permalink
Sem betur fer höfum við ekki öll áhuga á því sama, annars væri lífið einhæft og leiðinlegt. Samt fyndið hvað maður getur stundum verið sjálfhverfur og gleymir því stundum að áhugi okkar fellur í ólíkar áttir. Löngu áður en ég byrjaði í lögfræðinni hélt ég t.d. að þetta væri mjög þurrt fag, maður væri að lesa eldgamlar rykfallnar skruddur * og að það væri ekkert gaman af þessu. Einhvern vegin endaði ég í stjórnmálafræðinni og hafði í raun aldrei neina ástríðu fyrir faginu. Öfundaði þá sem nenntu að læra og höfðu áhuga á því sem sagt var. Á þeim tíma hreikslaðist fólk oftar en ekki á því af hverju ég hefði valið stjórnmálafræði og hvort ég ætlaði á þing. Einn góður frændi minn fattaði heldur ekki hvernig í ósköpunum ég gæti nýtt þetta nám úti í atvinnulífinu. Og hvað ætlaru eiginlega að verða sagði hann, sjálfur verkfræðingurinn. Ég í raun vissi það svo sem ekki en hafði svona óljósa mynd um það. Kannski eðlilegt, enda vinna stjórnmálafræðingar við allan andskotann. En svona er þetta, ef maður hefur það mikla ástríðu fyrir því sem maður er að gera, þá á maður það til að gleyma því að aðrir deila ekki endilega þessari ástríðu með manni. Og það átti t.d. við mig, ég deildi ekki ástríðu um burðarþol með honum. Það fannst honum meira en skrýtið, enda pabbi minn verkfræðingur og bróðir minn verkfræðinemi á þessum tíma.
Núna stend ég hins vegar í sömu sporum og hann. Finnst eiginlega skrýtið að allir fari ekki í lögfræði. Bíddu, ætlaru ekki í lögfræði, segi ég við fólk - vitandi að það gæti orðið glimrandi lögfræðingar. Lögfræðin er svo skemmtileg elskan, verður bara að prófa, þú getur þá bara fengið það metið yfir í einhvern annan skóla síðar - sem þú náttúrlega munt ekki að gera, því þetta er svo skemmtilegt :) En, þó að fólk gæti orðið afburðar lögmenn þá gæti það líka orðið afburða kokkar eða e-ð allt annað, og ef áhuginn liggur þar þá er það auðvitað frábært fyrir mig líka. Alltaf gaman þegar kokkar bjóða manni í mat.
Síðustu daga erum við búin að vera að vinna í þessu rosalega skemmtilega lögfræðiverkefni, sem endar svo með máli fyrir héraðsdómi Reykjaness. Þar fáum að spreyta okkur sem bæði lögmenn og dómarar. Spennandi!!! Hópurinn minn sat einmitt inn í matsal í dag, þegar við gjörsamlega gleymdum okkur í lögfræðihúmornum...já erum við að tala um 218 ezkan eða hvað? muahahaha.... Það er kannski bara ágætt að við erum ekki öll í laganámi, hversu steiktur yrði heimurinn þá?.... Jah, maður spyr sig.
* Getur reyndar líka átt við nýjar bækur sbr. "skemmtilega" bókin Immaterialret í Hugverkarétti sem fékk (og fær) að rykfalla upp í mínum hillum....
Posted at 05:02 pm by Boggz
Permalink
May 1, 2006
Gaman af því hvað Íslendingar verða framkvæmdaglaðir þegar það er gott veður. Ekkert nema gott um það að segja, fyrir utan biðraðir sem kunna að myndast á þessum dögum. Greinilega fleiri en ég að fara í Sorpu á svona góðviðrisdögum.... Framkvæmdagleðin herjaði mína fjölskyldu í gær. Keypt var heljarinnar grill, held ég hafi sjaldan séð eins stórt grill nema bara í sjónvarpinu.

Þegar grillið var sett saman var ég heldur ekki alveg viss um hvort við værum að setja saman grill eða bíl. Sem sagt BBBQ hjá mér í sumar
Homer: Look, kids! I just got my party invitations back from the printer's! Lisa: (reading) Come to Homer's BBBQ. The extra "B" is for BYOBB. Bart: What's that extra "B" for? Homer: That's a typo. Currently listening to: Stand UpBy Dave Matthews Band
Posted at 03:03 pm by Boggz
Permalink
Apr 28, 2006
Við vitum öll að það er ekki alltaf allt sem sýnist og það er auðvelt að misskilja fólk ef maður þekkir ekki til. Þetta á sérstaklega við í samtali milli fólks frá ólíkum menningarheimum....
Verkefnahópurinn minn sat saman í gær, þegar ein gerði grín að okkur hinum, þar sem við notuðum allar gleraugu. Gleraugnaglámar. Hins vegar kom upp á daginn að sú hin sama sá hins vegar frekar illa og þarf oftar en ekki að tosa augnhúðina til hliðar (rétt eins og maður væri að leika kínverja...) til að sjá betur. Við vorum ekki allar sammála um að það virkaði, enda sumar með sjónskekkju og aðrar hálf blindar. Okkur fannst þetta hins vegar mjög sniðugt og vorum allar að prófa.... Á meðan þessu stóð, var ein þeirra að gefa mér slóð á einni síðu, sem innihélt meðal annars "ping pong"... Einni fannst það fáránlegt nafn á síðu og heldur úr takt við tilgang síðunnar....Var því gert mikið grín af því...
...Eftir smá tíma og nokkuð mikið rugl varðandi útlendingana sem verkefnið okkar fjallar um (mjög skemmtilegur hópur hér á ferð) varð okkur litið á næsta borð.
Þar sat par. Held ég frá Japan....
Fokk!!
....Vonandi hafa þau ekki mistúlkað þetta rugl í okkur....
Posted at 07:31 am by Boggz
Permalink
Apr 26, 2006
Það kemur ykkur eflaust ekki á óvart, en ég er byrjuð að drekka kók aftur...Talandi um agaleysi. Þetta er kannski bara eitthvað sem ég verð að sætta mig við? Vá, hvað ég væri góður kandídat í coke-auglýsingu 
Posted at 08:11 pm by Boggz
Permalink
Apr 25, 2006
Einhver kona hringdi í mig áðan og sagðist hafa áhuga á að gera tilboð í húsið mitt. Fannst það frekar skrýtið þar sem:
1. Húsið er ekki til sölu
2. Ég á ekki húsið, heldur leigi í kjallaranum
3. Húsið er ekki á alfaraleið og ekki eins og ég búi við þannig útsýni að ókunnugir séu að berjast um að gera mér gott tilboð á hverjum degi.
Þar sem ég fór í tíma í samningatækni í morgun, kippti ég mér hins vegar ekkert upp við þetta og byrjði að rugla aðeins í henni. Því miður komst hún fljótt að því að hún var að gera tilboð í vitlaust hús. Það þótti mér fyndið.
Posted at 04:53 pm by Boggz
Permalink
Var að skoða ferilskrána mína og sá að einn liður undir áhugamál var "lestur góðra bóka".... Er það ekki nokkuð augljóst? Ég meina, myndi maður e-n tímann byrja að lesa bók bara út af því hún væri leiðinleg. Ég hætti nú yfirleitt bara að lesa þegar ég hef ekki áhuga..... eða eru kannski e-r með áhuga á lestri leiðinlegra bóka?
Posted at 07:37 am by Boggz
Permalink
Apr 24, 2006
Komst að því um daginn að ég er gjörsamlega heyrnarlaus.
Um helgina týndi ég svo linsunum mínum, eins og svo vill oft vera eftir djamm hjá mér. Farið að verða svoldið þreytandi...
Þannig að núna er ég lost case. spurning um að kaupa handa mér hjólastól....
Posted at 06:22 pm by Boggz
Permalink
|
|
|